Um okkur

Störf í boði
Tego ehf. er sífellt í leit að hæfileikaríku fólki sem hefur áhuga á að starfa með okkur að uppbyggingu og vexti fyrirtækisins.
 
Lykilþættir í starfsemi okkar eru þjónustulund, samvinna, sveigjanleiki, framsækni og metnaður. Allir sem hafa áhuga á að vera hluti af okkar góða teymi og starfa með áhugasömu og metnaðarfullu starfsfólki eru hvattir til þess að sækja um með því að senda okkur ferilskrá á tego@tego.is
 
Meðhöndlun umsókna 
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega en ef reynsla og hæfni umsækjenda nýtist mögulega í lausar stöður verður haft samband við viðkomandi.
 
Allar umsóknir eru geymdar í 9 mánuði, eftir þann tíma er þeim eytt. Ef ekki hefur komið til ráðningar innan þess tíma og enn er óskað eftir starfi, þarf að sækja um á ný. Ef umsækjandi kýs að umsókn verði eytt fyrir þann tíma sem tilgreindur er hér að ofan þá vinsamlega sendið tölvupóst á tego@tego.is.